Nýtt verkfæri: Aðstoð við rökstuðning
Við kennarar lendum reglulega í aðstæðum þar sem við þurfum að koma sjónarmiðum okkar á framfæri á skýran og faglegan hátt. Hvort sem það er að útskýra fyrir foreldri af hverju námsmatið er eins og það er, aðstoða nemanda við að orða rökstuðning, eða skrifa erfiðan tölvupóst — þá skiptir máli hvernig hlutirnir eru orðaðir.
Verkfærið „Aðstoð við rökstuðning" er hannað einmitt fyrir þessar aðstæður. Þú lýsir málinu í nokkrum orðum, velur hverjum rökstuðningurinn er beint að og í hvaða formi þú vilt fá hann — hvort sem það eru punktar til undirbúnings, tilbúinn tölvupóstur eða skilaboð í Mentor eða Námfús.
Hugmyndin að verkfærinu fæddist þegar kennari þurfti bæði að aðstoða nemanda við að rökstyðja mætingarvanda og svara foreldri varðandi framvindu í námi. Þetta eru verkefni sem við þekkjum öll — við vitum hvað við viljum segja, en stundum vantar bara aðstoð við að koma því í orð.
Verkfærið skilar ekki bara svörum heldur hugsar líka um gagn-rök sem gætu komið upp og hvernig megi bregðast við þeim. Þannig ertu betur undirbúin/n áður en þú hefur samtalið eða sendir skilaboðin.
Prófaðu verkfærið og láttu okkur vita hvað þér finnst — við erum alltaf að leita leiða til að gera Viskubrunninn nytsamlegri fyrir skólafólk.