Fylgdu þessum einföldu skrefum til að búa til hágæða kennsluefni.
66 tilbúin sniðmát, 22 aðstoðarmenn og 34 sérsmíðuð verkfæri — hvert þeirra byggt fyrir eitt ákveðið verk í skólastarfinu, ekki almennt spjall sem þú þarft að útskýra fyrir í hvert skipti.
Tilbúin snið fyrir bréf, verkefni, þýðingar og fleira.
Spjallmenni sem svara, útskýra og gefa hugmyndir.
Myndir, gröf, skýringarmyndir og litamyndir.
Lestu úr niðurstöðum og gögnum úr skólastarfinu.
Lagfærðu texta og aðlagaðu orðalag að lesendum.
Það sem þú hefur vistað til að vinna áfram með.
Skrifaðu og endurskrifaðu með gervigreind við höndina.
Búðu til próf og sendu beint í Google Forms.
Spurningar á öllum þrepum Bloom-flokkunarinnar.
Greindu próf og sjáðu hvað það mælir í raun.
Matskvarðar með skýrum viðmiðum fyrir hvert þrep.
Tengdu hæfniviðmið aðalnámskrár við kennsluna.
Greindu ritun nemenda og fáðu endurgjöf til að byggja á.
Stuttar kannanir til að sjá hvar bekkurinn stendur.
Umsagnir um nemendur, orðaðar af yfirvegun.
Námskrá sniðin að einum nemanda.
Kennslustundir um samskipti, líðan og ábyrgð.
Glærupakkar með myndum, glósum og verkefnum.
Áætlun fyrir heila önn, tengd hæfniviðmiðum.
Skipulag einstakra kennslustunda, skref fyrir skref.
Kenndu nemendum að nota gervigreind af dómgreind.
Lestrarkennsla fyrir yngstu nemendurna.
Sérsniðin verkefni byggð á aðalnámskrá.
Aðlagaðu námsefni að getu og áhuga hvers hóps.
Áskoranir fyrir nemendur sem þurfa meira.
Hvernig á að kenna þennan kafla þessum bekk: lesblinda, ÍSAT, athygli, námserfiðleikar og fleira, án nafna, með síðu fyrir stuðningsfulltrúann.
PISA-lík verkefni í náttúrugreinum: kveikja með gögnum, spurningar um túlkun gagna, mat á rannsókn og útskýringu, matslyklar, og kennarablað sem útskýrir vísindin fyrir kennara án náttúrufræðimenntunar. Byggt á hæfniviðmiðum.
Heimildalæsi í samfélagsgreinum: tvær heimildir um sama mál, spurningar um að meta heimild, lesa úr gögnum, setja sig í spor annarra og taka rökstudda afstöðu, matslyklar, og kennarablað fyrir kennara sem er ekki sérmenntaður í greininni. Byggt á hæfniviðmiðum.
Tilbúinn tími fyrir forfallakennara: námsgrein, bekkur, lengd, og þú færð tíma sem hvaða kennari sem er stýrir frá einu blaði, með nemendablaði, svarlykli og miða til kennarans.
Spjöld sem lesa sig hringinn um stofuna: „Ég er með … Hver er með …“. Verkfærið semur orðin fyrir efnið, eða þú límir orðalista og það semur vísbendingarnar. Prentað með lykli kennarans.
Námsspjöld úr kafla sem þú sendir: hugtök, spurningar, orðaforði á öðru tungumáli eða ártöl. Afritað beint í Quizlet, sótt sem CSV eða prentað til að klippa út.
Krossgátur, orðaleit, stafabrengl, orðakeðjur og fleiri þrautir úr orðalista, texta eða efni, tilbúnar til að prenta með svörum.
Bekkjarstörf og pör: hlutverkum skipt jafnt viku fyrir viku, eða nemendur paraðir svo allir vinni með öllum.
Dæmahefti af þeirri lengd og með þeim dæmum sem þú biður um, fyrir 1.–4. bekk: samlagning, frádráttur, margföldun, deiling, talnamynstur, klukkan og orðadæmi. Svörin fylgja.
Þraut til að klippa út sem tengir samlagningu við margföldun: nemendur snúa bitunum þar til 6, 3 · 2 og 2 + 2 + 2 mætast. Fyrir 2.–4. bekk, með lausn kennarans.
Orðmyndablöð fyrir yngstu nemendur: hver stafur fær kassa í sinni lögun, háan, venjulegan eða hangandi, og nemandinn les lögun orðsins. Þrjár útfærslur og prentað beint.
Sniðmát okkar eru hönnuð til að gera þér kleift að búa til sérsniðin námsefni hratt og auðveldlega, jafnvel útfrá því námsefni sem þú hefur nú þegar.
Verðskrá okkar er einföld og skýr. Við bjóðum upp á mánaðargjald eða árgjald með afsláttarkjörum.